Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Rosa |
|
|
|
Nafn |
|
woodsii |
|
|
|
Höfundur |
|
Lindl. |
|
|
|
Ssp./var |
|
v. fendleri |
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
(Crépin) Rydb. |
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Valrós |
|
|
|
Ætt |
|
Rósaætt (Rosaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól (-hálfskuggi). |
|
|
|
Blómlitur |
|
Lillableikur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí-ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
90-120 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Villirós. Lágvaxinn, einblómstrandi runni, þyrnar grannir, beinir. Axlablöð og leggir kirtilhærðir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufin stór, mattgræn, oftast tvísagtennt með 3-9 smálauf. Blóm lillableik og með villirósailm, 4-8 krónublöð. Nýpur fallegar, margar, glansandi, litlar rauðgljáandi í klösum. Blóm og nýpur dálítið minni en á aðaltegundinni. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Vestur N-Ameríka. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
Z4 |
|
|
|
Heimildir |
|
Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg,
http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm,
www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=56231,
davesgarden.com/guides/pf/go/62281/#b
|
|
|
|
Fjölgun |
|
Sumar-, síðsumar eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í trjá- og runnabeð. Talin mjög frostþolin. |
|
|
|
Reynsla |
|
Rosa woodsii v. fendleri var sáð í Lystigarðinum 1990, gróðursett í beð 1992, kelur dálítið. Sáð 1994, plantað í beð 2000, kelur talsvert, vex vel, engin blóm 2008 og 2009. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|