Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Rosa sericea
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   sericea
     
Höfundur   Lindley
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flosrós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa omeiensis, R. omeiensis v. pteracantha, R. sericea v. pteracantha.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur-rjómalitur.
     
Blómgunartími   Sól.
     
Hæð   240-300 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, dálítið útbreiddur runni, 240-300 sm hár og um 180-360 sm breiður. Greinar 200-400 sm, gráar eða brúnar með beina eða bogna, rauðleita þyrna sem vita upp á við og sem eru með breiðan grunn, beinir eða bognir, tveir og tveir saman undir laufunum, oft eru grönn þornhár innan um þyrnana. Axlablöðin mjó.
     
Lýsing   Laufin sumargræn, smálaufin 7-11 oddbaugótt, aflöng, eða öfugegglaga, 0,6-3(-7) sm. Hvasstennt við oddinn, snubbótt eða ögn ydd, stundum hærð á neðra borði, jaðrar með einfaldar tennur, oft aðeins á efri hluta laufsins. Silkihærð á neðra borði. Engin stoðblöð. Blómsætin hárlaus. Blómin stök á hliðarleggjum, einföld, 2,5-6 sm í þvermál. Bikarblöðin heilrend, hárlaus eða silkihærð á ytra borði, upprétt eða útstæð og eru lengi á nýpunum. Krónublöðin oftast 4 sjaldan 5, hvít eða rjómalit, sýld í endann. Nýpur hnöttóttar til perulaga, á mjóum legg, dökkfagurrauðar, skarlatsrauð-appelsínugular eða gular, 0,8-1,5 sm, sléttar. Fræ aðeins neðst í nýpunni.
     
Heimkynni   Himalaja, NA Indland, N Bútan, SV & Mið Kína, Xizang.
     
Jarðvegur   Meðal frjór, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Ónæm fyrir svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
     
Harka   H4
     
Heimildir   2, Huxley & al. 1992: The New Royal Horticultural Society Dictionary of Gardening 4, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, davesgarden.com/guides/pf/go/64873/#b, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rosa+sericea
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumargræðlingar með hæl eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla (tekur 12 mánuði).
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- og runnabeð.
     
Reynsla   Rosa sericea var sáð í Lystigarðinum 1994 og plantað í beð 2004, vex vel en engin blóm 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is