Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Aconitum tanguticum
Ættkvísl   Aconitum
     
Nafn   tanguticum
     
Höfundur   (Maxim.) Stapf
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hulduhjálmur*
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól - dálítill skuggi.
     
Blómlitur   Blápurpura.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   8-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hulduhjálmur*
Vaxtarlag   Stöngulstofn spólulaga eða öfugkeilulaga, um 2 sm. Stönglar 8-50 sm háir, greindir eða ógreindir, með ogn af niðursveigðum eða aðlægum dúnhár eða næstum hárlaus. Grunnlauf 7-9 með langan legg, leggurinn 3,5-14 sm, hárlaus, grunnur greipfættur, laufblaðkan kringlótt eða kringlótt-nýrlaga, 1,1-3 x 2-6,8 sm, hárlaus bæði ofan og neðan, 3-flipótt, fliparnir grunnflipóttir, jaðrar með bogformaðar tennur. Stöngullauf 1-2(-4), oftast leggstutt, minni en grunnlaufin.
     
Lýsing   Blómskipunin endastæð með 3-5 blóm, aðalblómskipunarleggur og blómleggir meira eða minna þéttdúnhærð, hárin vita niður á við, Stoðblöð bandlaga eða stundum eru þau neðstu 3-skipt. Neðstu blómskipunarleggirnir (1-)2,5-4,5(-6,5) sm, efstu styttri með 2 smástoðblöð, smástoðblöðin egglaga til breiðbandlaga, 2-2,5 mm. Bikarblöð blápurpura, sjaldan grænleit, dúnhærð neðan, neðri bikarblöðin breið-oddbaugótt eða oddbaugótt-egglaga, hliðarbikarblöðin 1,1-2,1 sm löng og breið, efri bikarblöðin kjallaga, 6-8 mm breið, neðri jaðar ögn íhvolfur eða hálfuppréttur, 1,4-2,2 sm há. Krónublöð ögn bogin, hárlaus, nöglin mjög smá, 0,6-1,5 mm, vörin ógreinileg, dálítið íhvolf, sporinn beinn, stuttur. Fræflar dálítið dúnhærðir, frjóþræðir heilrendir eða 2-tenntir. Frævur 5, dúnhærðar eða hárlausar. Fræhýði um 1 sm. Fræin öfugegglaga, 2-2,5 mm.
     
Heimkynni   Kína (S Gansu, A Qinghai, Shaanxi, V Sichuan, A Xizang, NV Yunnan).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=200007370,
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð, í þyrpingar, í raðir.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.   var. tanguticum er með hárlaus eggleg, en var. trichocarpum er með dúnhærða eggleg.
     
Útbreiðsla  
     
Hulduhjálmur*
Hulduhjálmur*
Hulduhjálmur*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is