Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Lilium 'Fire King'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Fire King'
     
Höf.   Stooke, 1933
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Lilium 'Fireking'
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Skær appelsínurauður, lítillega purpuradoppótt.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   (45-60) eða allt að 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, laufóttur stöngull, allt að 100 sm hár.
     
Lýsing   Foreldrar Lilium ×`Harmony` myndaði fræið en frjó kom frá Lilium × `Byan's Ruby'. Plantan er há og stæðileg, (45-60) eða allt að 100 sm há. Lauf djúpgræn, glansandi. Blómin eru skær appelsínurauð, lítillega purpuradoppótt við grunninn vita út á við, blómhlífarblöð fremur breið. Blómhlífarblöð baksveigð.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Blómin og plantan sjálf hafa mikið mótstöðuafl gegn sjúkdómum og veirusmiti.
     
Harka  
     
Heimildir   1, http://davesgarden.com, http://www.patentgenius.com, Upplýsingar af umbúðunum, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun   Fjölgað með því að skipta laukhreistrum.
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Laukarnir eru gróðursettir með 15-20 sm millibili í beð eða beðjaðra. Þeir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram.
     
Reynsla   Reyndist skammlíf. Laukur var gróðursettur í Lystigarðinn 2004, dauð 2005.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is