Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Lilium 'Ivory Pixie'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Ivory Pixie'
     
Höf.   Komið á framfæri 1978.
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Fölgulur-rjómalitur, beinhvítur með örlitlar doppur í miðjunni.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   35-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Blómin eru ilmlaus, fölgul-rjómalit, beinhvít, með örlitlar doppur í miðjunni, stór og opin, 75-150 mm breið, vita upp á við. Gin gulgrænt. Stönglar eru 35-40 sm háir, uppréttir. Lauf mjó-lensulaga, dökkgrænt, glansandi.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, lífefnaríkur, leir- og sandborinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.learn2grow.com, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun   Fjölgað með hliðarlaukum og æxlilaukum úr blaðöxlunum.
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 25-30 sm millibili t.d. í blönduð beð eða ker. Góð til afskurðar.
     
Reynsla   Laukar (2 stk.) voru keyptir í Lystigarðinn 2005, blómstruðu mikið í september 2010 og margir nýir stönglar höfðu myndast síðan 2005, enda báðir á stað þar sem vel er vökvað og borið á um vaxtartímann.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Allir liljublendingarnir í ‘Pixie’ seríunni eru kynbættar og ræktaðar í Oregon Bulb Farms í Aurora, Oregon, USA. Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is