Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing) Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
|
Ættkvísl |
|
Lilium |
|
|
|
Nafn |
|
michiganense |
|
|
|
Höfundur |
|
Farw. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Sléttulilja* |
|
|
|
Ætt |
|
Liljuætt (Liliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölæringur og laukplanta. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Undir trjám. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Appelsínurauður með rauðar doppur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst-september. |
|
|
|
Hæð |
|
30-120 sm. |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttir, laufóttir stönglar. |
|
|
|
Lýsing |
|
Stönglar 30-120 sm, en geta orðið allt að 1,5-2 m. háir, hárlausir og blágrænir. Laukar með renglur, skriðulir, 3×3 sm, hver blómstrar aðeins einu sinni. Hreistur eru þykk og gul með bleika eða brúna slikju. Lauf 9-12×5 sm, lensulaga eða oddbaugótt-lensulaga í allt að fjórum 4-8 laufa krönsum, blágræn á efra borði. Neðra borð og jaðrar með smáar tennur. Laufin stundum stakstæð rétt undir blómskipunina og neðst á stönglinum. Blóm 7,5 sm breið, 3-6, stöku sinnum allt að 25, á löngum blómleggjum efst á stönglinum, ilmandi, túrbanlaga, drúpandi. Blómleggir allt að 24 sm, bogsveigðir. Blómhlífarblöð 6 talsins, (10)7×2 sm baksveigð, appelsínurauð með rauðar doppur, gin gulhvítt/grænt við grunninn, baksveigð. Fræflar 6, ná langt út úr blóminu. Frjó appelsínubrúnt. Stíll 1 og fræni 3-flipótt. |
|
|
|
Heimkynni |
|
A & M N-Ameríka. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór og vel framræstur en rakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1, Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I & II. – third ed. London. http://www.missuriplants.com
|
|
|
|
Fjölgun |
|
Með fræjum. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í trjáa- og runnabeð. Sumir telja hana undirtegund L. canadense L.
|
|
|
|
Reynsla |
|
Var sáð í Lystigarðinum 1998 og flutt út í beð 2005, dauð 2009. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
Vex í skógum, í rökum jarðvegi, í brekkum og víðar.
Þessi auðþekkta lilja er oft ræktuð. Ekki er víst að hún lifi veturinn af hér. Blómhlífin getur breytt um lit í ræktuninni. Plöntur í ræktun geta líka haft miklu fleiri en 5 blóm á stöngulendanum. Fræ spíra hægt. Jarðvegur blanda af mómold og sandi, laus við kalk.
|
|
|
|
|
|