Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Ledum groenlandicum ‘Compactum’
Ættkvísl   Ledum
     
Nafn   groenlandicum
     
Höfundur   Oeder
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Compactum’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Heiðaflóki
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Dvergvaxinn runni.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   0,5-2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Dvergvaxinn runni.
     
Lýsing   Sjá ennfremur lýsingu á aðaltegundinni.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Súr og rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlinar með undirhita, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í rök beð með súran jarðveg.
     
Reynsla   Plöntunum var sáð 1991 og allar gróðursettar 2001. Vetrarskýling 2001-2007. Yfirleitt ekkert eða lítið kal gegnum árin, blómstrar af og til.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is