Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Rhododendron campylocarpum
Ættkvísl   Rhododendron
     
Nafn   campylocarpum
     
Höfundur   Hook.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bogalyngrós
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Föl brennisteinsgulur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   - 5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runni eða lítið tré allt að 5 m hátt, ungir sprotar með fáeina leggstutta kirtla.
     
Lýsing   Lauf 3-10 sm, kringlótt til oddbaugótt, 1-2,5 sinnum lengri en þau eru breið, hárlaus eða sjaldnar með fáein rauðmenguð kirtilhár við grunninn á neðra borði. Bikar 3-5 með bogadregna flipa með stutt kirtilhár. Krónan 2,5-4 sm, bjöllulaga, föl brennisteinsgul, stundum er blómknappurinn með rauða slikju. Með eða án bletta við grunninn. Eggleg þéttþakið kirtilhárum, stíll hárlaus eða kirtilhærður. Hýði 1-3,2 sm, bogin. &
     
Heimkynni   Himalaja, Kína, SA Burma.
     
Jarðvegur   Súr, lífefnaríkur, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   1,7
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlingar
     
Notkun/nytjar   Í runnabeð þar sem birtan er síuð til dæmis gegnum krónur trjáa.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 2006. Kelur lítið sem ekkert en hefur ekki blómstrað.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is