Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Rhododendron canadense
Ættkvísl   Rhododendron
     
Nafn   canadense
     
Höfundur   (L.) Torr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kanadalyngrós
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikpurpura (sjaldan hvítur).
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fínlegur, lauffellandi runni, allt að 1 m hár með grannar, uppréttar greinar sem eru hærðar þegar þær eru ungar.
     
Lýsing   Lauf 1,5- 6 sm, oddbaugótt eða aflöng, meira eða minna öfugegglaga, með niðurorpna jaðra og randhærð, dökk blágræn og dálítið stinnhærð á efra borði, með strjál hár á neðra borði, sum þeirra eru með kirtla. Bikar mjög smár, flipar mislangir, þornhærðir. Krónan allt að 2 sm, mjög opin, breið-bjöllulaga, vörin tvíklofin, sú hlið krónupípunnar sem niður snýr er klofin næstum að grunni, bleikpurpura sjaldan hvít. Fræflar 10 talsins, eggleg dúnhært og með fáeina kirtla og þornhár. Stíll hárlaus eða ögn hærður við grunninn. Hýði allt að 2-3 sm, þornhærð og dúnhærð. &
     
Heimkynni   A N-Ameríka frá Labrador til Pennsylvaníu.
     
Jarðvegur   Súr, lífefnaríkur, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z3
     
Heimildir   1,7
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í runnabeð þar sem birtan er síuð til dæmis í gegnum krónur trjáa.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er planta sem sáð var 1990, gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Kelur oftast lítið, blómstrar af og til.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is