Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Spiraea japonica ‘Albiflora’
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   japonica
     
Höfundur   (L.) Desv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Albiflora’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japanskvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   Allt að 60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 60 sm hár.
     
Lýsing   Laufin lensulaga, fölgræn en blágræn á neðra borði. Blómin hvít í þétthærðum skúf. Greinar kantaðar.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í kanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is