Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Spiraea japonica ‘Plena’
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   japonica
     
Höfundur   (L.) Desv.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Plena’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japanskvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní-ágúst.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi, lítill runni.
     
Lýsing   Falleg hvít blóm.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Þrífst vel í rökum, frjóum jarðvegi.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   http://iglaco.com
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Notaður í beð meðfram gangstéttum og gangstígum og í beðkanta og oft með öðrum plöntum. Hægt að klippa og forma.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1999 og gróðursett í beð 2001, flott 2002, dálítið kal sum ár, engin blóm 2011.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is