Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Crataegus nigra
Ættkvísl   Crataegus
     
Nafn   nigra
     
Höfundur   Waldst. & Kit.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Svartþyrnir
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Snemmsumars
     
Hæð   2-5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi tré, allt að 5 m hátt. Krónan hvelfd. Greinar stinnar, grá-lóhærðar í fyrstu en verða hárlausar með aldrinum, purpurabrúnar. Þyrnar allt að 1 sm, oft mjög fáir.
     
Lýsing   Lauf 3-10 × 2,5-7 sm, þríhyrnd til egglaga, grunnur fleyglaga til þverstýfður, jaðrar með 7-11 grunna flipa, fliparnir sagtenntir. Laufin mattgræn, dúnhærð ofan og neðan laufleggir allt að 1,5 sm, þéttdúnhærðir, axlablöð með stórar hvassar tennur. Blóm 1,5 sm í þvermál, hvít en verð bleik með aldrinum, eru í litlum, dúnhærðum hálfsveipum. Fræflar 20, frjóhnappar gulir, stílar 5. Aldin 1 sm, hálfhnöttótt, svört, gljáandi, holdið mjúkt.
     
Heimkynni   SA Evrópa, Ungverjaland.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Haustsáning.
     
Notkun/nytjar   Stakstætt tré, í þyrpingar, í blönduð runnabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum var til ein planta sem sáð var 1984 og gróðursett í beð 1988, lifði aðeins fáein ár þar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is