Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Syringa × swegiflexa
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   × swegiflexa
     
Höfundur   Hesse
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Reykjasýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rauður til damask-bleikur, byrja að fölna um leið og blómin hafa sprungið út.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni.
     
Lýsing   Lauffellandi, runni, allt að 4 m hár, laufin lík og hjá bogsýrenu (S. komarowii ssp. reflexa), heilbrigð. Líkist bogasýrenu en blómskipunin er stærri og þéttari. Blómin eru rauð til damask-bleik, byrja að fölna um leið og þau springa út, blómklasar langir og glæsilegir.
     
Heimkynni   Garðablendingur (S. komarowii ssp. reflexa x S. tomentella ssp. sweginzowii).
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur, lífefnaríkur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1, http://koju.de
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt planta undir þessu nafni, sem var plantað í beð 1993. Þrífst vel, ekkert kal skráð.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is