Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Syringa pubescens ssp. pubescens
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   pubescens
     
Höfundur   Turcz.
     
Ssp./var   ssp. pubescens
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flossýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Purpura-lilla, hvítur innan.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni, allt að 5 m hár.
     
Lýsing   Ungar greinar og aðalblómskipunarleggir meira eða minna ferkantaðar. Lauf oddbaugótt til breiðegglaga, 2-5×1-4 sm, hárlaus ofan nema stundum á aðalstrengnum og grófustu æðastrengjunum, grunnur meira eða minna bogadreginn, oddur meira eða minna snubbóttur til (oftast) stutt-odddreginn. Krónan purpura-lilla, hvít innan, krónupípa 8-12 mm langir, flipar 3-5 mm langir.
     
Heimkynni   NM Kína.
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur, lífefnaríkur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H1
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð,í þyrpingar, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is