Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Syringa reticulata ssp. amurensis
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   reticulata
     
Höfundur   (Blume) Hara
     
Ssp./var   ssp. amurensis
     
Höfundur undirteg.   (Ruprecht) P.S. Green & M.C. Chang
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Drekasýrena / Amúrsýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti   Syringa amurensis Ruprecht, Ligustrina amurensis (Ruprecht), Ruprecht, S. reticulata v. mandshurica (Maximowicz) Hara, S. reticulata v. amurensis (Ruprecht) Pringle.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rjómahvítur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni eða lítið tré allt að 6 m hátt.
     
Lýsing   Lauf egglaga til breið-egglaga, stundum næstum kringlótt, 3,7-7(sjaldan allt að 10) ×1,8-7 sm, hárlaus, grunnur snubbóttur til bogdreginn. Laufleggir stinnir. Blómskipunin hárlaus. Krónupípa 1,5-2 mm löng, flipar 2-3 mm langir. Hýði 1,7-2 sm, toppur snubbóttur.
     
Heimkynni   NA Kína, aðlæg Síbería og Kórea.
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H1
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, þyrpingar, sem stakur runni eða tré.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem sáð var til 1981 og 1991. Sú eldri hefur kalið ögn flest ár, en sú yngri kelur ekkert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is