Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Berberis edgeworthiana
Ættkvísl   Berberis
     
Nafn   edgeworthiana
     
Höfundur   Schneid.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Leðurbroddur**
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   - 1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þyrnóttur, fremur lágvaxinn, uppréttur runni.
     
Lýsing   Lauffellandi runni, allt að 1 m hár. Lauf allt að 3 sm, mjó-oddbaugótt, sjaldan lensulaga, leðurkennd, ydd, með allt að 8 langar tennur á hvorri hlið, hárlaus, mattgræn, með greinilegt netæðamynstur. Blómin bollalaga, gul, allt að 25 í 4 sm löngum skúf, næstum legglausum. Aldin allt að 1 sm, hörð, glansandi, skarlatsrauð, egglaga, stílar engir.
     
Heimkynni   NV Himalaja, Choor.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, vel framræstur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stakstæðir, í raðir, í blönduð beð og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1994 og gróðursett í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is