Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Amelanchier laevis
Ættkvísl   Amelanchier
     
Nafn   laevis
     
Höfundur   Wieg.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sætamall
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   - 13 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi, 10 – 13 m hátt tré í heimkynnum sínum, oftast aðeins breiður, greinóttur runni, stundum vöxt sem minnir á tré með slútandi hárlausar greinar.
     
Lýsing   Lauffellandi runni eða tré allt að 13 m hátt. Lauf 4-6 sm, egglaga, ydd, grunnur bogadreginn, fíntennt næstum að grunni, hárlaus, æðastrengjapör 12-17. Blómklasar allt að 12 sm, hangandi, blóm fjölmörg. Krónublöð 1,2 – 2,2 sm, hvít. Aldin allt að 1,8 sm breið, hnöttótt, purpuralit til næstum svört, sæt.
     
Heimkynni   Mið N-Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   1, 2, 10
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1997 og gróðursett í beð 2000, kelur nokkuð flest ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is