Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Lonicera altmannii
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   altmannii
     
Höfundur   Reg. & Schmalh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Túrkestantoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur með gula slikju.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   2,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 2,5 m hár.
     
Lýsing   Lauffellandi runni, allt að 2,5 m hár. Ungar smágreinar purpura-dúnhærðar. Lauf allt að 6 × 0,85 sm, egglaga-til oddbaugótt, yfirleitt ydd, bogadregin við grunninn eða langydd, randhærð, oddur oftast dúnhærður, laufleggir allt að 5 mm. Blómin hvít, með gula slikju, tvö og tvö saman, stoðblöð 6,5 mm, blómleggir 6,5 mm, króna 12 mm, pípan grönn, stærri en fliparnir, hliðskökk, dúnhærð. Berin 8 mm, sporvala, appelsínurauð.
     
Heimkynni   Túrkestan
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Græðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, þyrpingar og fleira.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1978 og gróðursett í beð 1985, kelur mismikið. Óvíst hvort planta sé rétt greind.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is