Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Lonicera syringantha
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   syringantha
     
Höfundur   Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dísatoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dauflilla.
     
Blómgunartími   Vor sumar.
     
Hæð   - 3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 3 m hár, tígulegur, mikið greinóttur. Ungir sprotar grannir, hárlausir.
     
Lýsing   Lauf tvö og tvö eða þrjú og þrjú saman, allt að 2,5 sm × 9,5 mm, aflöng eða egglaga, snubbótt eða breiðydd, bogadregin eða dálítið hjartalaga við grunninn, mattgræn, dálítið bláleit, hárlaus. Laufleggur 2 mm. Blóm 12,5 mm, tvö og tvö saman, dauflilla, ilmandi. Bikarblöð lensulaga, krónupípa bjöllulaga, allt að 8 mm, dúnhærð innan. Berin rauð.
     
Heimkynni   Kína, Tíbet.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntu undir þessu nafni, sem sáð var til 1979 og gróðursett í beð 1987 og önnur sem sáð var til 1989 og gróðursett í beð 2004, báðar kala ögn árlega
     
Yrki og undirteg.   ‘Grandiflora’ Blómin stór
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is