Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Lonicera × muscaviensis
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   × muscaviensis
     
Höfundur   Rehd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hærutoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti   (L. morrowii × L. ruprechtiana)
     
Lífsform  
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni. Ungir sprota dúnhærðir.
     
Lýsing   Lauf allt að 5 sm, egglaga til oddbaugótt-aflöng, odddregin, dökkgræn, lítið eitt dúnhærð á efra borði, þétt dúnhærð á neðra borði. Blómin hvít. Berin skærrauð.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð, í þyrpingur, í kanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntu undir þessu nafni, sem sáð var til 1989 og gróðursettar í beð 1997 og 2004. Þrífast vel, kala lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is