Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Lonicera × notha
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   × notha
     
Höfundur   Wils.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skintoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti   L. ruprechtiana × L. tatarica
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur, gulur eða bleikur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   2-4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Kröftugur, uppréttur, lauffellandi, uppréttur runni. Ungir sprotar hárlausir eða næstum hárlausir.
     
Lýsing   Laufin allt að 6 sm, egglaga til lensulagaoddbaugótt, odddregin, bogadregin eða þverstýfð við grunninn, lítið eitt dúnhærð til næstum hárlaus neðan. Blómin hvít, gul eða bleik, tvö og tvö saman, . Krónan 18 mm, með tvær varir, pípan útvíkkuð. Berin rauð.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Meðaalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð, í kanta, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær, gamlar plöntur, sem þrífast vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is