Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Acer sieboldianum
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   sieboldianum
     
Höfundur   Miq.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skógarhlynur*
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni - lítið tré
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Fölgulgrænn
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   6 m (- 10 m í heimk.)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Tré eða runni allt að 10 m há í heimkynnum sínum, en allt að 6 m í ræktun.
     
Lýsing   Börkur ljósgrár. Ungar greinar grábrúnar eða með munstur sem minna á köngulóarvef og stundum með þétt, úfið hár meðan þær eru ungar. Lauf með 7-11 egglaga-aflanga flipa, oftast með 9 flipa, kringluleit. Dökkgræn ofan, oft með purpuralita jaðra, æðastrengir dúnhærðir á neðraborði, jaðrar tvísagtenntir, tennur vísa fram. Blómskipunin upprétt, oft þétthærð, með 15-20 fölgulgræn blóm. Aldin allt að 2 sm, hnotir hnöttóttar, með áberandi æðum. Vængir mætast í gleiðu horni.
     
Heimkynni   Japan.
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1, 2
     
Fjölgun   Sá fræjum um leið og þau eru þroskuð eða verið forkæld.
     
Notkun/nytjar   Í raðir, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 1991, kól dálítið framan af, en lítið í seinni tíð.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is