Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Acer stachyophyllum ssp. stachyophyllum
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   stachyophyllum
     
Höfundur   Hiern
     
Ssp./var   ssp. stachyophyllum
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Brúskahlynur
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae)
     
Samheiti   Acer tetramerum Pax
     
Lífsform   Runni - lítið tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Gulur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   5-8 m (- 10m í heimk.)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Oftast margstofna runni, 5-10 m á hæð, myndar rótarskot. Börkur grá- eða gulbrúnn, sléttur. Greinar eru grænar eða rauðgrænar og sléttar, oft skærrauðar þegar þær eru ungar.
     
Lýsing   Laufin heilrend eða grunn 3-flipótt, egglaga eða öfugegglaga, langydd, grunnur þverstýfður eða bogadreginn, skærgræn á efra borði, ljósari og dúnhærð í fyrstu á því neðra. Jaðrar tvísagtenntir, tennurnar vita fram á við. Blómskipunin er oft í klösum. Karlblómin eru í klösum sem vaxa frá lauflausu brumi. Kvenblómin vaxa af ýmiskonar brumum svo sem brumum með par af laufum eða frá lauflausum brumum á kröftugum greinum. Blómin gul. Skífa er um grunn frjóþráðanna. Aldin um 3 sm, stundum allt að 4,5 sm. Vængir mætast í hvössu horni.
     
Heimkynni   A Himalaja til M Kína.
     
Jarðvegur   Ýmiskonar jarðvegur, súr, hlutlaus, basískur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1, 2, http://www.plantdatabase.co.uk
     
Fjölgun   Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld.
     
Notkun/nytjar   Sjaldan í ræktun.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 2006 og lofar góðu.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is