Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Cotoneaster bullatus v. floribundus
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   bullatus
     
Höfundur   Bois.
     
Ssp./var   v. floribundus
     
Höfundur undirteg.   (Stapf) L.T. Lu & A. R. Brach
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ígulmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   Ljósbleikur-hvítur
     
Blómgunartími   Vor - snemmsumars
     
Hæð   2-3 m (- 4 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni, allt að 3 m á hæð.
     
Lýsing   Laufin litlu stærri en hjá aðaltegundinni, en með styttri legg. Laufleggur 1,5-2,5 mm, laufblaðka egglaga eða öfugegglaga til oddbaugótt, minni en 5 sm. Blómskipunin er 4-6 sm í þvermál, með mörg blóm,(9-)15-31 blóm. Aldin stór og þétt saman, með 4-6 kjarnar/fræ.
     
Heimkynni   Kína
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, http://apps.rhs.org.uk, http://www.efloras.org
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í raðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein gömul planta undir þessu nafni, frá því fyrir 1960, þrífst vel. Ígulmispill hefur reynst vel í Lystigarðinum (k:0-3) - getur farið illa í vorfrostum, dálítið miskalinn eftir árum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is