Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Crataegus arnoldiana
Ættkvísl   Crataegus
     
Nafn   arnoldiana
     
Höfundur   Sarg.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sagþyrnir*
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   Crataegus mollis (Torr. & A. Gray) Scheele
     
Lífsform   Lauffellandi runni eða lítið tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   4-7 m (-10 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stórvaxinn runni eða lítið, krónumikið tré. Þyrnar stórir og sterklegir. Greinar gráar til brúnar, þaktar löngum, úfnum hárum í fyrstu.
     
Lýsing   Lauf heil, 4-5 sm, með 4-5 hvassydda, sagtennta flipa á hvorri hlið, egglaga með bogadreginn eða þverstýfðan grunn. Laufin á langsprotunum eru miklu stærri en laufin á dverggreinunum. Blómin eru hvít, um 3 sm í þvermál, fjölmörg í mörgum, gisblóma hálfsveipum. Fræflar 10, frjóhnappar ljósgulir. Aldin um 1,5 sm í þvermál, ljósblárauð, sjaldan rauð, hnöttótt, með flókið hár á báðum endum. Fræ 3 eða 4.
     
Heimkynni   NA Ameríka.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   2, http://eol.org
     
Fjölgun   Haustsáning.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð tré, í blönduð trjábeð, í raðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem sáð var til 1994 og gróðursettar í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is