Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Larix × marschlinsii
Ættkvísl   Larix
     
Nafn   × marschlinsii
     
Höfundur   Coaz
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae)
     
Samheiti   L. kaempferi × L. russica, Larix x. eurolepis. Henry
     
Lífsform   Lauffellandi barrtré.
     
Kjörlendi   Sól. Þrífst ekki í skugga.
     
Blómlitur   Karlblóm gul, kvenblóm purpurarauð.
     
Blómgunartími  
     
Hæð   - 50 m
     
Vaxtarhraði   Vex hratt.
     
 
Vaxtarlag   Larix x marschlinsii er lauffellandi tré sem nær allt að 50 m hæð. Blendingur sem vex fljótt (16 ára plöntur höfðu náð 7-8 m hæð í Sviss) og er frábrugðinn móðurplöntunni japanslerki (L. kaempferi) með alveg hárlausum ársprotum.
     
Lýsing   Blómin eru einkynja (hvert og eitt blóm annað hvort karlkyns eða kvenkyns) en bæði kynin er að finna á sama trénu. Vindfrævun. Með stærri og meira egglaga könglum en japanslerkið. Köngulhreistur ekki aftursveigt í endann. Hreisturblöðkur ná út úr könglunum. Barrið blágænt.
     
Heimkynni   Garðablendingur. Ekki til úti í náttúrunni. Fannst í skógargarðinum Tscharenholz í Morat, Sviss 1901. Blendingur úr görðum L. decidua x L, kaempferi.
     
Jarðvegur   Léttur (sendinn), helst vel framræstur, en rakur, meðalfrjór eða magur, sýrustig skiptir ekki máli.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4 er ekki viðkvæmt fyrir frosti.
     
Heimildir   = 7, http://www.pfaf
     
Fjölgun   Græðlingar. Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar, sem stakstætt tré. Þolir næðinga en ekki saltúða.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til eitt tré sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 1999, kelur mjög lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is