Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Astragalus |
|
|
|
Nafn |
|
danicus |
|
|
|
Höfundur |
|
Retz. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Fjóluhnúta |
|
|
|
Ætt |
|
Ertublómaætt (Fabaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Purpuralitur eða fjólublár. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Vor-sumar. |
|
|
|
Hæð |
|
- 30 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt, allt að 30 sm há. Stönglar uppréttir.
|
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf allt að 10 sm, smálauf 12-26, öfugegglaga, snubbótt til framjöðruð, lítið eitt hærð bæði ofan og neðan. Klasinn þéttblóma, hnöttóttir til egglaga, blómskipunarleggir allt að 20 sm. Bikar allt að 1 sm, pípulaga, 5-tenntur. Krónan purpuralit eða fjólublá, fáni allt að 2 sm. Aldin belgir, allt að 1 × 0,5 sm, egglaga, útflattir, hvítsilkihærðir. |
|
|
|
Heimkynni |
|
S & V Evrópa. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Sendinn, léttur, meðalrakur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
Z5 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, skipting. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í beð, í steinhæðir. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2004 og gróðursett í beð 2010. Þrífst vel. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|