Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Astragalus |
|
|
|
Nafn |
|
norvegicus |
|
|
|
Höfundur |
|
Grauer |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Klettahnúta |
|
|
|
Ætt |
|
Ertublómaætt (Fabaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Móblár, (sjaldan móhvítur). |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Sumar. |
|
|
|
Hæð |
|
15-20 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Fjölær jurt, 15-20 sm há, stönglar stinnir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf með um það bil 6 smálaufapör, verða fljótt hárlaus líka á neðra borði. Blómskipun aflöng, Bikartennur um ¼ af bikarpípunni, tennurnar snubbóttar, Krónan móblá, (sjaldan móhvít). Vængir skástæðir í blóminu og um 2 mm lengri en kjölurinn. Belgir hangandi, með svart hár. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Austurríki, Slóvenía, N Evrópa, Evrópu-hluti Rússlands. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Sendinn, grýttur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
= 9, http://en.hortipedia |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í beðkanta. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni 2013, sem var sáð til 2010 og gróðursett í beð 2011. Tegundin hefur verið af og til í Lystigarðinum, en lognast út af með tíð og tíma. Sáð var til tegundarinnar 1987 og 1994, gróðursett í beð 1996, drapst. Ein til viðbótar sem sáð var til 2003, gróðursett í beð 1994, dauð 2007. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|