Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Erigeron speciosus 'Wuppertal'
Ættkvísl   Erigeron
     
Nafn   speciosus
     
Höfundur   (Lindl.) DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Wuppertal'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Garðakobbi
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ljósfjólublár.
     
Blómgunartími   Síðsumars.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Garðakobbi
Vaxtarlag   Sjá lýsingu hjá aðaltegund.
     
Lýsing   Hálfofkrýnd blóm, blómin ljósfjólublá.
     
Heimkynni   Yrki
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, fremur magur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Hefur verið í Lystigarðinum frá 1988, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Garðakobbi
Garðakobbi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is