Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Fritillaria bithynica
Ættkvísl   Fritillaria
     
Nafn   bithynica
     
Höfundur   Bak.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Stelkalilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Laukur, fjölær.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Ljósgulur-grængulur.
     
Blómgunartími   Maí.
     
Hæð   15-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Laukar allt að 2 sm í þvermál. Stönglar 8-20 sm.
     
Lýsing   Lauf 5-8, stökusinnum allt að 12, yfirleitt gagnstæð, öfuglensulaga til egglaga. Blóm 1 til 2, stöku sinnum 4, mjó-bjöllulaga, stoðblöðin venjulega 3 í kransi, blómhlífarblöð 17-27 mm, þau innri öfugegglaga og fleyglaga, öll gulgræn eða bláleit á ytra borði, stöku sinnum með purpura bletti, gulgræn innan, hunanskirtlar 3 x 1 mm við grunninn, lensulaga, brúnir eða grænir, stíll 7-10 mm, grannur, sléttur, heilrendur. Fræhýði með vængi.
     
Heimkynni   V Tyrkland, Grísku eyjarnar Samos og Khios.
     
Jarðvegur   Rakur, framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   8
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð.
     
Reynsla   Harðgerð planta. Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur (H.Sig.).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is