Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Campanula primulifolia
Ættkvísl   Campanula
     
Nafn   primulifolia
     
Höfundur   Brotero
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lykilklukka
     
Ætt   Campanulaceae (Bláklukkuætt)
     
Samheiti   (C. trachelinum Brotero not Linneus)
     
Lífsform  
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   Purpurablár
     
Blómgunartími   Síðsumars
     
Hæð   0,7-0,9 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þornhærður, uppréttur fjölæringur. Blómstönglar beinir, allt að 90 sm háir, kantaðir, safamiklir og greinast frá grunni.
     
Lýsing   Stofnstæðu laufin allt að 15 sm, hærð og mynda blaðhvirfingar. Þau eru aflöng-lensulaga til öfugegglaga, óreglulega tvítennt, hrukkótt með mjóvængjaða blaðstilka. Stöngullauf egglaga-aflöng, ydd, leggstutt til stilklaus efst. Blómskipunin greinótt, blómin endastæð eða í blaðöxlunum, stök eða 3-5 saman. Bikarflipar langyddir og fíntenntir. Enginn aukabikar. Krónan allt að 2 sm, grunnbjöllulaga, purpurablá með hvítleitum grunni. Hýði öfugkeilulaga-aflöng og opnast með götum um miðjuna.
     
Heimkynni   Portúgal, Spánn
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, frjór, rakaheldinn
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1, 2, HS
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar  
     
Reynsla   Nokkrar plöntur í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is