Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Geranium x oxonianum 'Claridge Droce'
Ættkvísl |
|
Geranium |
|
|
|
Nafn |
|
x oxonianum |
|
|
|
Höfundur |
|
Yeo. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
'Claridge Droce' |
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Skrautblágresi |
|
|
|
Ætt |
|
Blágresisætt (Geraniaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Rauðbleikur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí-ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
80 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Blendingur haustblágresis (G. endressii) og grikkjablágresi* (G. versicolor). Þetta er fFrjó, laufótt jurt, allt að 80 sm há. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufin lík og á Geranium versicolor, en með dýpri sepa en á haustblágresi (G. endressii), 5-20 sm breið, dálítið hrukkótt, með dáítið af brúnum blettum. Blómin trektlaga, allt að 40 mm í þvermál, Bikarblöð allt að 11 mm. Krónublöð bleik, sýld, æðar með oftast með dýpri lit, netæðótt, allt að 26 x 15 mm. Fræum slöngvað burt. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Yrki. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, vel framræstur, meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting að vori eða hausti. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í beð, sem undirgróður. |
|
|
|
Reynsla |
|
|
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
'Claridge Druce' er kröftug, hærð, hávaxin jurt, laufin dökkgræn, dálítið glansandi. Blóm trompetlaga. Krónublöð rauð-bleik með dekkri æðum, neðsti hluti æðanna lýsist með aldrinum. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|