Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Thalictrum dasycarpum
Ættkvísl   Thalictrum
     
Nafn   dasycarpum
     
Höfundur   Fisch., C.A.Mey. & Avé-Lall.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Purpuragras
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur með purpura slikju.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt með stuttan og sveran jarðstöngul og með uppréttan stöngul, allt að 200 sm háan, oftast purpuralit. Lauf skipt, þau neðstu með legg, þau efstu legglaus, flipar þykkir, aflangir, heilrendir, fíndúnhærðir neðan.
     
Lýsing   Blómskipunin hálfsveipur-skúfur, stór og falleg. Bikarblöð 2,5 mm löng, jafnlöng og fræflarnir. Blóm álút, hvít með purpura slikju.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, HHP
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í blómaengi.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Vex villt í kjarrlendi í rökum jarðvegi, oft neðan við kalkkletta. Laufin haldast græn langt fram eftir hausti ef þurrt er í veðri.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is