Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Gypsophila cerastoides
Ættkvísl   Gypsophila
     
Nafn   cerastoides
     
Höfundur   D. Don.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Steinaslæða
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur eða lilla með bleikum æðum.
     
Blómgunartími   Maí-Júlí.
     
Hæð   5-7 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Steinaslæða
Vaxtarlag   Útbreidd, fjölær jurt með grá hár, myndar breiður, minnir í útliti á músareyra (Cerastium), en auðveldlega aðgreind á 2 (ekki 5 stílum).
     
Lýsing   Neðstu laufin eru spaðalaga, með langan legg, efri laufin öfugegglaga, næstum legglaus. Blómin allt að 2 sm í þvermál, í gisnum hálfsveip. Krónublöð hvít eða lilla-lit með bleikar æðar.
     
Heimkynni   Himalaja.
     
Jarðvegur   Léttur, lífrænn, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í hleðslur, í beð.
     
Reynsla   Meðalharðgerð jurt, lítt reynd hérlendis.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Steinaslæða
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is