Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Hypericum maculatum
Ættkvísl   Hypericum
     
Nafn   maculatum
     
Höfundur   Crantz.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flekkjagullrunni
     
Ætt   Gullrunnaætt (Hypericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærgulur, svartir kirtlar á jöðrunum.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   50-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, 15-100 sm hár. Stönglar uppréttir, rótskeyttir við grunninn, greinar með 2-4 rif, uppsveigðir til útstæðir. Lauf 10-50x9-20 mm, oddbaugótt eða aflöng til egglaga, bogadregin í oddinn, grunnur fleyglaga, ljósari neðan, þykk pappírskennd, æðarmynstrið þétt netæðótt með fremur fáa eða enga hálfglæra kirtla.
     
Lýsing   Blómin 2-3 sm í þvermál, stjörnulaga, mörg, í breiðum til mjóum pýramídalaga blómskipun. Bikarblöð 4-6 x 1-2 mm, ekki samvaxin, breiðegglaga til aflöng, snubbótt eða bogadregin, heilrend eða fín og óreglulega tennt, ekki með kirtla. Krónublöð 0,9-1,2 sm, skærgul, ekki með rauða slikju, aflöng-öfuglensulaga, ekki með kirtla á jöðrunum, oftast með marga svarta kirtla (rákir og/eða doppur) á yfirborðinu. Fræflar 0,9-1x krónublöðin. Fræflar 3 og 3 í knippi, stílar 3 talsins, 4-6 mm. Stílar 1,3-1,6x eggleg. Eggleg ekki samvaxin. Olíukirtlar á hýðunum eru bandlaga.
     
Heimkynni   Írland, Frakkland, Pyreneafjöll til V Síberíu.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, magur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning að vori.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í steinhæðir, í hleðslur, í kanta. Þarf uppbindingu. Notuð til lækninga. Seyði blóma hefur græðandi og róandi áhrif.
     
Reynsla   Meðalharðgerður.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is