Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós "Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."
|
Ættkvísl |
|
Alnus |
|
|
|
Nafn |
|
glutinosa |
|
|
|
Höfundur |
|
(L.) Gaertn. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Rauðölur (rauðelri) |
|
|
|
Ætt |
|
Bjarkarætt (Betulaceae) |
|
|
|
Samheiti |
|
A. rotundifolia. Betula glutinosa |
|
|
|
Lífsform |
|
Tré |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól |
|
|
|
Blómlitur |
|
Brúnn |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Mars-apríl |
|
|
|
Hæð |
|
8-12 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
Verður meira en 12 m hátt tré og 4-8 m breitt. Er 20 – 50 ár að ná þessari stærð. |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Tré sem getur orðið allt að 20-25 m á hæð í heimkynnum sínum, oft margstofna. Töluvert lægra í ræktun hérlendis. Krónan breið-keilulaga til mjó-pýramídalaga, gisgreinótt. Börkur brúnsvartur, ungar greinar hárlausar, þaktar límkirtlum. Brumin grápurpura og ungir reklar áberandi að vetrinum. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf skærgræn, 4-10 sm löng, eru á trénu langt fram á haust, haldast græn með ryðgula hæringu, á neðra borði, hárlaus í æðastrengjavikunum, breið-hálfegglaga til kringlótt, bogadregin í oddinn eða framjöðruð, grunnur odddreginn, jaðrar óreglulega bugðóttir, sjaldan tvítenntir, dökk glansandi græn ofan, ljósari neðan, hárlaus nema með ryðgula brúska í æðastrengjakrikunum, æðastrengjapör 5-6, sjaldan allt að 8, leggur 1-2,5 sm, ungir reklar áberandi að vetrinum, karlreklar 5-10 sm, 3-5 saman, kvenreklar 1-2 sm, egglaga, með langan legg, 3-8 saman. Aldin dökkbrún að haustinu. Blómin eru einkynja (hvert blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns, en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni), vindfrævun. Aldin lítil vængjuð hnot. Helst grænt langt fram eftir hausti. Á rótum eru hnúðar með geislasvepp (Frankia) sem vinna köfnunarefni handa trénu - ekki ofgera með köfnunarefnisáburði það getur skaðað tréð. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Evrópa til Kákasus og Síberíu, N Afríka. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Þungur, meðalþungur, rakur, vel eða illa framræstur |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
3 |
|
|
|
Heimildir |
|
1, 7, http://apps.rhs.org.uk, http://www.pfaf.org, ÓN |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sumargræðlingum (í júlí), sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Stakstæð, í þyrpingar, í blönduð beð.
Plantað þar sem lítið er haft fyrir ræktuninni svo sem í villiblómaengi, í mýragarða til skjóls við strendur eða limgerði til skjóls. Elrið nemur köfnunarefni úr andrúmsloftinu. Plantan getur vaxið nálægt sjó.
Ættkvíslin (Alnus/elri) er þekkt fyrir að þrífast vel í mögrum, blautum jarðvegi og víða notuð við uppgræðslu. |
|
|
|
Reynsla |
|
Klónn í LA frá Finnlandi er afar harðgerður, vex vel og kelur ekkert (Spont.: Finnland, Kokkola, Norra Hamnskäret frá Oulu 1982).
Rauðelrinafnið er dregið af rauðum kjarnaviði í miðju stofnsins. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Fjöldi yrkja og forma er í ræktun erlendis, lítt eða ekki reynd hérlendis. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|