Sigfús Daðason - Vængjasláttur Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.
Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!
Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.
Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.
Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.
|
Ættkvísl |
|
Juniperus |
|
|
|
Nafn |
|
chinensis |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Kínaeinir |
|
|
|
Ætt |
|
Sýprisætt (Cupressaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Sígrænn runni eða tré. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Karlblóm gulleit, kvenblóm græn. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Haust. |
|
|
|
Hæð |
|
1-1,5 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
Hægvaxta. |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Sígrænn runni eða lítið tré. Getur orðið allt að 20 m hár í heimkynnum sínum. Krónan breið eða mjó keilulaga eða plantan er bara runnkennd og jarðlæg. |
|
|
|
Lýsing |
|
Ársprotar fíngerðir og með 2 gerðir af nálum. Hreisturlíka barrið er mjó-tígullaga, þéttaðlægt, u.þ.b. 1,5 mm langt, snubbótt, í 4 röðum, græn með ljósari jaðar og djúplægum kirtlum á bakhliðinni. Nállaga barr eru líka á villtum plöntum eða stundum á öllum plöntunum, þau eru 3 í hvirfingu eða 2 og 2 í kross, u. þ. b. 8-12 mm löng, að ofan með grænt miðrif og 2 bláhvítar loftaugarákir; hvassydd. Tvíbýlisblóm, ♂ blóm gul, aldin kúlulaga, 6-8 mm breið, brún, döggvuð verða fullþroska á 2. ári og eru með 2-3 fræ. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Kína, Mongólía og Japan. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1,7 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sumargræðlingar, sáning, haustgræðlingar. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Þyrpingar, steinhæð, beð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein mjög falleg planta undir þessu nafni. Til hennar var sáð 1990, gróðursett í beð 2001, verarskýling 2001-2007, kelur ekkert.
Meðalharðgerður runni, þarf vetrarskýlingu framan af aldri. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|