Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Levisticum officinale
Ættkvísl   Levisticum
     
Nafn   officinale
     
Höfundur   W.D.J. Koch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skessujurt
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulleitur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   150-200 sm
     
Vaxtarhraði   Vex hratt.
     
 
Vaxtarlag   Stórvaxinn fjölæringur, 1-2 m hár. Stönglar djúpgreyptir að grunni. Lauf stór, dökkgræn, gljáandi, 2-3 fjaðurskipt, sagtennt. Ilmar eins og silla (sellerí(Apium graveolens)).
     
Lýsing   Blóm smá, grængul, í 12-20 geisla sveipum með mörg, himnukennd, mjó, niðurstæð stoðblöð.
     
Heimkynni   Upprunnin í Íran, víða ræktuð og hefur numið land í Evrópu og Bandaríkjunum.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakur.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, HHP,
     
Fjölgun   Skipting að hausti eða vori, sáning að hausti. Fræ missa fljótt spirunarhæfni sína og því ætti að sá þeim strax og þau hafa verið tínd.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð í grasflatir, í skrautblómabeð með stórum fjölæringum.
     
Reynsla   Gamlar plöntur eru til í Lystigarðinum, þrífast vel. Falleg og stæðileg planta sem er góð í hvaða garð sem er. Alla hluta plöntunnar svo sem blöð, fræ og rætur má nota sem krydd. Laufið er/var meðal annars notað í kjötsúpu, líka gott í pestó.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Skessujurtin er gömul lækningajurt.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is