Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Draba |
|
|
|
Nafn |
|
brunifolia |
|
|
|
Höfundur |
|
Steven |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Brúnavorblóm* |
|
|
|
Ætt |
|
Krossblómaætt (Brassicaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Skærgulur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Vor. |
|
|
|
Hæð |
|
|
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Þýfð, fjölær jurt. Lauf 4-6 x um 1 mm, stinn, bandlaga, oddlaus, hárlaus eða fínhærð, randhærð. Blómstönglar lauflausir, 1-10 sm, hárlausir til þétthærðir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómskipunin gisin með 6-16 blóm, dálítið lík hálfsveip. Bikarblöð 3 mm, egglaga til öfugegglaga, bogadregin í oddinn, hærð, jaðrar gagnsæir. Krónublöð 5-6 mm, skærgul, egglaga, grunnsýld eða þverstýfð. Fræflar 2,5-3 mm. Aldin/skálpar egglaga, hærðir, 3,5-6 x 2,5-3,5 mmloki dálítið kúptur. Stíll um 0,5 mm. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Tyrkland, Kákasus, N Íran. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Malarborinn, sendinn, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
7 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1,2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir. |
|
|
|
Reynsla |
|
Er ekki í Lystigarðinum 2015, en hefur verið sáð. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|