Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Lewisia oppositifolia
Ættkvísl   Lewisia
     
Nafn   oppositifolia
     
Höfundur   (S. Wats.) Robinson.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Brekkublaðka
     
Ætt   Grýtuætt (Portulacaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi fjölæringur.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur-daufbleikur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   - 20(-25) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi fjölæringur, sem myndar stilka, 10-20(-25) sm háa, með grunnlauf og upprétta stilka með gagnstæð stilklauf, sem vaxa upp af stuttum neðanjarðar stöngulstofni, með kjötkenndar oft greinóttar rætur.
     
Lýsing   Grunnlauf fá, græn glansandi ofan, band-spaðalaga eða band-öfuglensulaga, 4-10 sm löng, 5-10 mm breið, snubbótt eða sljóydd, mjókka smám saman að grunni í gagnsæjan, vængjaðan lauflegg, grunnurinn er neðanjarðar. Stöngullauf eru lík grunnlaufunum en minni, í 1-3 pörum neðarlega á stönglinum, grunnur þeirra er oft neðanjarðar. Blómskipanirnar 1-allmargar, með gisna hálfsveipi með (1-)2-5(-6) blóm. Stoðblöð lensulaga, 4-8 mm löng, himnukennd, með löngu en millibili á stilknum, þau efri styðja greinar blómskipunarinnar, heilrend eða tennt í oddinn. Blómleggir grannir 2-7,5 sm langir. Blóm 2-3 sm í þvermál, Bikarblöð 2, hálfkringlótt, 4-8(-10) mm löng, gróftennt með rauðleitar eða bleikleitar tennur, en ekki kirtiltennt. Krónublöð 8-11, bleik í knúbbinn, hvít þegar þau opnast eða daufbleik, öfuglensulaga eða öfugegglaga, 9-15 mm löng, 4-8 mm breið, skarast, bogadregin og oft tennt eða framjöðruð. Fræflar 8-18 talsins. Stíll djúpskiptur í 3-5 greinar. Hýði egglaga til aflöng 5-6 mm löng. Fræ 5-15, dökkbrún eða svartleit, 1-1,5 mm löng, slétt, gljáandi.
     
Heimkynni   SV Oregon, NV Kalifornía.
     
Jarðvegur   Malarborinn jarðvegur, meðalframræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, 22
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beðkanta.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum eins og er (2012).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Náttúrulegir vaxtarstaðir eru í 365-1220 m h.y.s., hamrar og malarborinn jarðvegur, rakur að vori, þurr að sumri.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is