Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Ligularia sibirica
Ættkvísl   Ligularia
     
Nafn   sibirica
     
Höfundur   (L) Cass.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dísarskjöldur
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Fagurgulur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   100-150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dísarskjöldur
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 150 sm há, oft með purpura slikju.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 25 x 20 sm, þríhyrnd-nýrlaga til hálf-örlaga, tennt, næstum hárlaus, þétthærð á neðra borði. Stöngullauf minni, fá, efri laufin mjórri, næstum legglaus. Körfur margar, um 3 sm í þvermál, í lotnum, blöðóttum klösum, stoðblöð bandlaga til lensulaga. Reifar allt að 20 mm, með 2 bandlaga stoðblöð jafnlöng reifunum. Stöðblöð 8-10, lensulaga. Geislablóm 7-11, gul, allt að 20 x 5 mm. Hvirfingsblóm mörg Aldin 4-6 mm, svifhárakrans gráhvít, lengri en fræin. körfur eru um 4cm í Þm og standa þétt saman í stuttum klasa blöðin fremur þynn og nánast þríhyrnd hjartalaga með langar hvassar tennur
     
Heimkynni   M & S Evrópa, Úralfjöll, Síbería - Japan.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 4, 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum, við tjarnir og læki, sem undirgróður.
     
Reynsla   Harðgerð en blómstar ef til vill ekki alveg á hverju ári norðanlands, þrífst best í rökum jarðvegi (H. Sig.).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Dísarskjöldur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is