Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Phlomis anisodonta
Ættkvísl   Phlomis
     
Nafn   anisodonta
     
Höfundur   Boiss.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Varablómaætt (Lamiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól - hálfskuggi.
     
Blómlitur   Fölbleikur, næstum hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   30-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, grunnlaufið 10 sm hátt í mesta lagi. Laufin eru aflöng, græn, létt, sumargræn.
     
Lýsing   Blómstilkar 20-30 sm háir.
     
Heimkynni   Íran (V Asía), einlend.
     
Jarðvegur   Frjór, framræstur, meðalvökvun.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = davesgarden.com/guides/pf/go/136582/#b, www.pepiniera-armalett.fr/catalogues/vivaces/item/phlomis-anisodonta-f-blance-2.html
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölæringum.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is