Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Lilium |
|
|
|
Nafn |
|
|
|
|
|
Höfundur |
|
|
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
'Star Gazer' |
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Skrautlilja* |
|
|
|
Ætt |
|
Liljuætt (Liliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
Lilium 'Stargazer' |
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölæringur og laukjurt. Asíublendingur (Asiatic hybrid),Mid Century blendingur. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Rauðrófupurpura –bleikpurpura með smáar, rauðbrúnar doppur |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst-september. |
|
|
|
Hæð |
|
60-90 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttir, laufóttir stönglar. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómin eru trektlaga til skállaga, ilma, vita upp á við, rauðrófupurpura –bleikpurpura með smáar, rauðbrúnar doppur í miðjunni. Stönglar eru 60-90 sm háir. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Yrki / Cultivar. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Vel framræstur, frjór og blandaður lífrænum efnum. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
1,
Upplýsingar af umbúðum,
http://www.davesgardens.com,
http://www.answers.yahoo.com,
http://www.americanmeadows.com,
http://www.ces.ncsu.edu
|
|
|
|
Fjölgun |
|
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum.
Myndar ekki fræ, blómin ófrjó eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ.e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
|
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt og heitt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla.Laukarnir eru gróðursettir 15 sm djúpt og með 40-45 sm millibili. Plantað í beð og beðkanta eða í ker t.d. á svalir.
Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.
Góð til afskurðar. |
|
|
|
Reynsla |
|
Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1992, hefur stundum rétt tórt, kom aðeins með eitt blóm 2010, hefur myndað nokkra nýja stöngla síðan 1992. Þarf meiri áburð og vökvun. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni.
Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
|
|
|
|
|
|