Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Lilium |
|
|
|
Nafn |
|
martagon |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Túrbanlilja |
|
|
|
Ætt |
|
Liljuætt (Liliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölæringur og laukplanta. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sólríkur vaxtarstaður (eða í hálfskugga). |
|
|
|
Blómlitur |
|
Fölvínrauður til mjúkpurpura með rauðbrúnar doppur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí-ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
50-100 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttir, laufóttir, stinnir stönglar. |
|
|
|
Lýsing |
|
Stönglar eru með stöngulrætur, purpuralitir, yfirleitt 50-100 sm háir, en geta orðið 200 sm, purpuragrænir. Laukar gulir, litlir, dálítið yddir, sammiðja, egglaga, 7,5 sm langir. Hreistur gul, aflöng eða lensulaga, ydd. Lauf sjaldan hærð, allt að 16×6,5 sm, oftast lenslaga eða öfuglensulaga, 7-9 tauga, flest í hvirfingum, 8-14 lauf í hverri. Blómskipunin er klasi með 5-30 blómum, geta orðið allt að 50 í klasanum, drúpandi, túrbanlaga, 5 sm breið, blómleggir stuttir. Blómhlífarblöð 3-4,5×0,6-1 sm, mjög aftursveigð, fölvínrauð til mjúkpurpura með rauðbrúnar doppur (sjaldan hvít), lyktin óþægileg. Frjó gult, fræni purpura. Aldin 3,5×2, sm.
Mörg yrki eru til af þessari lilju í Evrópu
|
|
|
|
Heimkynni |
|
NV Evrópa, NV Asía. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
4 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1, Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. – third ed. London. |
|
|
|
Fjölgun |
|
Með fræi, hliðarlaukum og laukhreistrum. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í trjá- og runnabeð, í skrautblómabeð.
|
|
|
|
Reynsla |
|
Það eru til a.m.k. sex gamlar plöntur til hér og hvar í Lystigarðinum, blómstra árlega (nema í skugga) og þrífast mjög vel. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Lilium martagon L. v. albiflorum Vukotinovic (samheiti: Lilium martagon L. ‘Albiflorum’).
Blómin hvít með fagurrauðar doppur.
Sjaldgæf.
Júgóslavía.
Lilium martagon L. v. hirsutum Weston.
Stönglar hærðir, purpuralitir. Lauf dúnhærð á neðra borði. Blóm purpurableik, doppótt.
Lilium martagon L. v. pilosiusculum Freyn.
Stönglar purpuralitir, hærðir. Lauf mjó randhærð. Blóm djúprauð, lítið doppótt.
Lilium martagon L. v. sanguineo-purpureum G. Beck.
Blóm dökkrauðbrún doppótt.
Balkanskagi.
'Blush' bleikir knúppar og rauð blóm, 'Gleam' ljósbleik knúbbar og rauð blóm og fleiri mætti nefna. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
Vex oftast í laufskógum í kalkenndum jarðvegi. |
|
|
|
|
|