Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Lilium pyrenaicum
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   pyrenaicum
     
Höfundur   Gouan.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallalilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukpanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður eða í hálfskugga.
     
Blómlitur   Brennisteinsgulur/grængulur, dökkbrúnar rákir og doppur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   60-120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Upprétt planta, laufblöðin mjög þéttstæð á stönglinum.
     
Lýsing   Stönglar 15-135 sm, grænir, stundum með purpuralitar doppur. Stönglar mynda oft rætur. Laukar 7×7 sm, breiðhnöttóttir, hreistur aflöng, lensulaga gulhvít, bleik í birtu. Lauf mörg, stakstæð, allt að 12,5×2 sm, bandlensulaga, ydd, jaðrar stundum silfurlitir eða randhærðir. Blóm allt að 12, drúpandi, túrbanlaga, 3,5-5 sm breið, í klasa. Lykt blómanna er óþægileg. Blómleggir allt að 12,5 sm. Blómhlífarblöð mjög baksveigð, brennisteinsgul/grængul, með dökkbrúnar rákir og doppur. Frjó appelsínurauð. Aldin 3,5-2,5 sm.
     
Heimkynni   Evrópa (SA Alpar, Pýreneafjöll, Balkanskagi, NA Tyrkland), USSR (Georgia).
     
Jarðvegur   Frjór, framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, Jelitto, L and Wilhelm Schacht 1990 Hardy Herbaceous Perennials. I &II. – third ed. London.
     
Fjölgun   Með fræjum, hliðarlaukum og laukhreistrum.
     
Notkun/nytjar   Skrautblómabeð, í forgrunn trjá- og runnabeða. Í steinhæðir, sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi. Jarðvegur þungur, leirkenndur með lífrænum leifum og kalkmöl.
     
Reynsla   Var sáð í Lystigarðinum 2007. Harðgerð planta og blómviljug (H.Sig) a.m.k. yrkið 'Aureum' sem er með gul blóm.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Vex í skógarjöðrum í fjöllum og engjum í 500-1500 m hæð.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is