Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Lilium × hollandicum
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   × hollandicum
     
Höfundur   Bergmans
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sveiplilja, logalilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   L. maculatum x L. bulbiferum
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður (eða í hálfskugga).
     
Blómlitur   Gulur, appelsínulitur eða rauður.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   70-130 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Sveipliljan er blendingur Lilium bulbiferum og Lilium maculatum. Stönglar 70-130 sm, eru með stöngulrætur. Lauf þétt saman, 3-tauga. Blóm upprétt, bollalaga, allt að 7,5 sm breið í sveipum. Blómhlífarblöð gul, appelsínulit eða rauð.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Fjór, framræstur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, http://www.ukwildflowers.com
     
Fjölgun   Laukar eða laukhreistur.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð og í skjóli.
     
Reynsla   Var keypt í Lystigarðinn 1984 og flutt út í beð 1985, er þéttur brúskur, blómstraði ekki 2010, er á of skuggsælum stað.
     
Yrki og undirteg.   'Golden Fleece' fagurgul, 'Incomparibilis' hárauð, 'Vermilion Brilliant' blóðrauð, 'Erectum' rauðgul, 'Apricot' aprikósulit.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is