Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Lonicera hispida
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   hispida
     
Höfundur   Roem. & Schult.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Klukkutoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur-gulhvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   1-1.5m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Klukkutoppur
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni allt að 1,5 m hár.
     
Lýsing   Ungir sprotar stinnhærðir. Laufin 8 × 3,5 sm, egglaga-aflöng, stutt-odddregin eða þverstýfð, bogadregin eða breið-mjókkandi við grunninn, þornhærð-dúnhærð, einkum á jöðrum og æðastrengjum á neðra borði, djúpgræn ofan, grágræn neðan, laufleggir 3 mm. Blómin gul eða gulhvít, tvö og tvö saman, axlastæð, hangandi, blómleggir 1 sm, krónan allt að 2 sm, trektlaga, umlukin egglaga, langæjum, hvítum stoðblöðum, allt að 2,5 sm löngum. Berin aflöng, 1,5 sm, skærrauð.
     
Heimkynni   Túrkestan.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Sem stakstæður runni, í þyrpingar, í beð, í limgerði.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til þrjár plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1978 og gróðursettar í beð 1980 og 1982, þrífast vel, kala lítið. --- Harðgerður til meðalharðgerður, lítt reynd en lofar góðu, vindÞolin.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Klukkutoppur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is