Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Lonicera morrowii
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   morrowii
     
Höfundur   A. Gray
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Vindtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur, seinna gulleitur.
     
Blómgunartími   Vor sumar.
     
Hæð   - 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þétt greindur, lauffellandi runni allt að 2 m hár. Ungar greinar ógreinilega fjórkantaðar, með þétt, stutt, mjúk dúnhár.
     
Lýsing   Lauf allt að 5 × 2,5 sm, aflöng eða egglaga til oddbaugótt, snubbótt, stöku sinnum hálfydd, bogadregin við grunninn, ljósgræn og dúnhærð, neðan. Blómin hvít, seinna gul, tvö og tvö saman, í blaðöxlunum, blómleggir allt að 1,5 sm. stoðblöð bandlaga, nokkuð laufkennd, smástoðblöð oddbaugótt. Bikarblöð breiðlensulaga, allt að 1 mm. Króna 13 mm, dúnhærð utan, efri vörin skipt að grunni, hliðskökk. Berin allt að 7×8 mm, íflöt-hnöttótt, dökkrauð, glansandi. Fræ 3×2 mm, egglaga eða hnöttótt-egglaga. Ε
     
Heimkynni   Japan
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í óklippt limgerði, í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta, sem var sáð til 1985 og gróðursett í beð 1989. Hefur kalið dálítið flest ár. Harðgerður, líkist nokkuð dúntopp sem er dúnhærður, bæði á efra og neðra borði blaða.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is