Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Lythrum salicaria
Ættkvísl   Lythrum
     
Nafn   salicaria
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Mararljós
     
Ætt   Blysjurtaætt (Lythraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Bleikpurpura.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   50-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Mararljós
Vaxtarlag   Hærður fjölæringur, allt að 120 sm hár, stönglar ferhyrndir.
     
Lýsing   Laufin yfirleitt stakstæð eða gagnstæð neðst á stönglinum, lensulaga, allt að 10 x 1,5 sm, legglaus, hjartalaga eða bogadregin í grunninn, æðastrengir áberandi á neðra borði. Blómskipanirnar með laufum, minna á ax (en er það ekki). Blómin í klasaþyrpingum í blaðöxlunum. Blómbotn allt að 6 mm með aukabikarblöð, 2-3 x lengri en bikarfliparnir. Fræflar og stílar af þrem tegundum, fræflar 12.
     
Heimkynni   Evrópa, Asía.
     
Jarðvegur   Rakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   Græðlingar að vori, skipting.
     
Notkun/nytjar   Við tjarnir og læki, í beð, í blómaengi.
     
Reynsla   Meðalharðgerð-harðgerð planta. Mörg yrki í ræktun sem erfitt er að tengja einni sérstakri tegund. Sum þeirra nefnd hér á eftir.
     
Yrki og undirteg.   'Atropurpureum' er með dökkpurpura blóm. 'Dropmore Purple' er með purpuralit blóm. 'Feuerkerze' ('Candlefire') er með skærrauðbleik blóm. 'Lady Seakville' er með skærbleikrauð blóm. 'Robert' er með skærrauð blóm. 'Roseum Superbum' er með stærri, blóm en aðaltegundin, blómin rósbleik. 'The Beacon' er með dökkkrauð blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Mararljós
Mararljós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is