Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Oxalis adenophylla
Ættkvísl   Oxalis
     
Nafn   adenophylla
     
Höfundur   Gill.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fagursmæra
     
Ætt   Súrsmæruætt (Oxalidaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Lillableikur til fjólublár með dekkri æðar.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt sem ekki er með stöngla, 10-15 sm, vex frá grunni á brúnum, jarðstöngulhnýðum með hreistur. Laufin fjölmörg, upprétt til útstæð, laufleggir 5-12 sm, rauðbrúnir. Smálauf um 6 x 6 mm, 9-22, öfughjartalaga, silfurgrá, hárlaus.
     
Lýsing   Blómstönglar jafn langir og laufin, 1-3 blóma, Blómin um 2,5 sm í þvermál, lillableik til fjólublá með dekkri æðar og 5 purpura bletti í hvítu gininu. Biparblöð ekki með appelsínugul þykkildi.
     
Heimkynni   Chile, V Argentína (Andesfjöll).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, léttur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í hleðslur, í fjölæringa beð, í kanta.
     
Reynsla   Hefur verið í Lystigarðinum síðan 1975, þrífst vel. Harðgerð jurt, mjög góð í steinhæðir (H. Sig.)
     
Yrki og undirteg.   'Minima' með smærri lauf.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is